 
ÖRYGGI
Lesið þessar einföldu leiðbeiningar. Sé þeim ekki fylgt getur það verið hættulegt eða varðað 
við lög. Lesa skal alla notendahandbókina til að fá nánari upplýsingar.
ÖRYGGI ÞEGAR KVEIKT ER Á TÆKINU
Ekki má kveikja á tækinu þar sem notkun þráðlausra síma er bönnuð eða þar sem 
hún kann að valda truflunum eða hættu.
UMFERÐARÖRYGGI GENGUR FYRIR
Fara skal að öllum staðbundnum lögum. Ætíð skal hafa hendur frjálsar til 
að stýra ökutækinu við akstur. Umferðaröryggi skal ganga fyrir í akstri.
TRUFLUN
Öll þráðlaus tæki geta verið næm fyrir truflunum, sem getur haft áhrif á 
virkni þeirra.
SLÖKKT Á TÆKINU Á AFMÖRKUÐUM SVÆÐUM
Virða skal allar takmarkanir. Slökkva skal á tækinu um borð í flugvélum, nærri 
lækningatækjum, eldsneytisstöðvum, efnaverksmiðjum eða svæðum þar sem 
verið er að sprengja.
VIÐURKENND ÞJÓNUSTA
Aðeins viðurkennt starfsfólk má setja upp eða gera við þessa vöru.
AUKAHLUTIR OG RAFHLÖÐUR
Aðeins má nota samþykkta aukahluti og rafhlöður. Ekki má tengja saman 
ósamhæf tæki.
VATNSHELDNI
Tækið er ekki vatnshelt. Halda skal því þurru.
■ Um tækið
Þráðlausa tækið sem lýst er í þessari handbók er samþykkt til notkunar í GSM 850, 900, 1800 
og 1900 og UMTS 900 og 2100 símkerfunum. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar um 
símkerfi.
Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum lögum og virða staðbundnar venjur, einkalíf 
og lögmæt réttindi annarra, þ.m.t. höfundarrétt.
Varnir vegna höfundarréttar geta hindrað afritun, breytingu eða flutning sumra mynda, 
tónlistar og annars efnis.
Tækið styður nokkrar mismunandi gerðir tenginga. Líkt og gildir um tölvur hafa vírusar og 
annað skaðlegt efni áhrif á tækið. Fara skal með gát við meðhöndlun skilaboða, tengibeiðna, 
við vefskoðun og við niðurhal. Aðeins skal setja upp og nota þjónustu og hugbúnað frá 
áreiðanlegum aðilum sem bjóða upp á nægjanlega vörn gegn skaðlegum hugbúnaði líkt og 
Symbian Signed hugbúnað eða hugbúnað sem hefur staðist Java Verified™ prófun. Þú ættir 
 
7
Ö R Y G G I
að íhuga að setja vírusvarnarhugbúnað og annan öryggishugbúnað upp í tækinu og tölvum 
sem tengjast við það.
Tækið getur innihaldið bókamerki og tengla fyrir vefsíður þriðju aðila. Einnig er hægt að 
skoða vefsíður þriðju aðila í tækinu. Vefsíður þriðju aðila tengjast ekki Nokia og Nokia 
hvorki hvetur til né tekur ábyrgð á þeim. Ef þú vilt heimsækja slíkar síður skaltu beita 
öryggisráðstöfunum.
Viðvörun: Við notkun allra aðgerða í þessu tæki, annarra en vekjara, þarf að vera 
kveikt á tækinu. Ekki skal kveikja á tækinu þegar notkun þráðlausra tækja getur 
valdið truflun eða hættu.
Skrifstofuforritið styður helstu valkosti Microsoft Word, PowerPoint og Excel 
(Microsoft Office 2000, XP og 2003). Ekki er hægt að skoða eða breyta öllum skráargerðum.
Muna skal að taka öryggisafrit eða halda skrá yfir allar mikilvægar upplýsingar sem geymdar 
eru í tækinu.
Meðan á lengri aðgerðum stendur, eins og myndsímtali eða háhraðagagnatengingu, getur 
tækið hitnað. Það er í flestum tilvikum eðlilegt. Ef þú telur tækið ekki vinna rétt skaltu fara 
með það til næsta viðurkennda þjónustuaðila.
Þegar tækið er tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók þess vandlega, einkum upplýsingar 
um öryggi. Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.
■ Sérþjónusta
Til að hægt sé að nota símann verður áskrift að þjónustuveitu fyrir þráðlausa síma að 
vera fyrir hendi. Margir af valkostum símans flokkast undir sérþjónustu. Ekki er hægt að 
nota þessa valkosti í öllum símkerfum. Í öðrum símkerfum kann jafnframt að vera farið 
fram á sérstaka skráningu fyrir þessari þjónustu. Leiðbeiningar ásamt upplýsingum um 
gjald fyrir þjónustuna fást hjá þjónustuveitu. Sum símkerfi kunna að hafa takmarkanir 
sem hafa áhrif á hvernig hægt er að nota sérþjónustu. Sum símkerfi styðja t.d. ekki alla 
séríslenska bókstafi og þjónustu.
Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar aðgerðir væru hafðar óvirkar eða ekki 
gerðar virkar í tækinu. Ef svo er birtast þær ekki í valmynd tækisins. Tækið kann einnig að 
hafa verið sérstillt, t.d. kann heitum, röð og táknum valmynda að hafa verið breytt. 
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar. 
Þetta tæki styður WAP 2.0 samskiptareglur (HTTP og SSL) sem keyra á TCP/IP 
samskiptareglum. Sumar aðgerðir þessa tækis, svo sem netvafur, tölvupóstur, 
kallkerfi og margmiðlunarboð krefjast símkerfisstuðnings við þessa tækni.
■ Rafhlaða fjarlægð
Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður en rafhlaðan er fjarlægð.
 
8
S t u ð n i n g u r v i ð n o t e n d u r