Nokia 6220 classic - Samskipanastillingar

background image

Samskipanastillingar

Áður en hægt er að nota margmiðlunarboð, kallkerfi, tölvupóst, samstillingu,
straumspilun og vafra, verður að slá inn réttar samskipanastillingar í tækið.
Tækið kann að setja sjálfkrafa upp stillingar fyrir vafra, margmiðlunarboð,
aðgangsstað og straumspilun samkvæmt SIM-kortinu sem notað er. Ef ekki,
þá er hægt að nota stillingaforritið til að setja upp stillingarnar. Stillingarnar
er hægt að fá í samskipanaboðum og vista þær í símanum. Nánari upplýsingar
má fá hjá þjónustuveitunni eða næsta viðurkennda söluaðila Nokia.

Þegar stillingarnar berast í samskipanaboðum, og þær eru ekki vistaðar og
virkjaðar sjálfvirkt, birtist

1 ný skilaboð

á skjánum. Veldu

Sýna

>

Valkostir

>

Vista

til að vista stillingarnar. Þú gætir þurft að slá inn PIN-númerið sem þú fékkst hjá
þjónustuveitunni.

background image

12

T æ k i ð