 
■ FM-útvarp
Til að opna útvarpið skaltu velja
>
Forrit
>
Radio
. Veldu
Hætta
til að slökkva
á útvarpinu.
Þegar þú opnar útvarpið í fyrsta skipti aðstoðar hjálparforrit þig við að vista 
útvarpsstöðvar (sérþjónusta).
Þjónustuveitan gefur upplýsingar um hvort þjónustan er tiltæk og hvað sjónræna 
þjónustan og stöðvalistaþjónustan kosta.
FM-útvarpið þarf annað loftnet en það sem er í þráðlausa tækinu. Samhæft höfuðtól eða 
aukahlutur þarf að vera tengdur tækinu ef FM-útvarpið á að virka rétt.
Viðvörun: Hlusta skal á tónlist með hæfilegum hljóðstyrk. Stöðug áraun af 
háum hljóðstyrk getur skaðað heyrn. Ekki skal halda tækinu nálægt eyranu 
þegar hátalarinn er notaður því hljóðstyrkur getur verið mjög mikill.
Útvarpið styður Radio Data System (RDS). Útvarpsstöðvar sem styðja RDS geta 
birt upplýsingar, svo sem heiti viðkomandi stöðvar. Ef stillt er á RDS er einnig reynt 
að finna aðra tíðni fyrir stöðina sem verið er að hlusta á, ef móttökuskilyrði eru 
slæm. Til að láta tækið leita sjálfvirkt að annarri tíðni velurðu 
Valkostir
>
Stillingar
>
Aðrar tíðnir
>
Kveikt á sjálfvirk. leit
.
 
53
F o r r i t t æ k i s i n s