Nokia 6220 classic - Hugbúnaður uppfærður

background image

Hugbúnaður uppfærður

Viðvörun: Ekki er hægt að nota tækið meðan á hugbúnaðaruppfærslu
stendur, jafnvel ekki til að hringja neyðarsímtöl. Aðeins er hægt að nota
það að uppfærslunni lokinni og þegar það hefur verið endurræst. Taka
skal öryggisafrit af gögnum áður en uppfærsla er samþykkt.

Það að hlaða niður hugbúnaði getur falið í sér stórar gagnasendingar um farsímakerfi
þjónustuveitu. Upplýsingar um gagnaflutningsgjöld fást hjá þjónustuveitum.

Gættu að því að rafhlaða tækisins hafi næga hleðslu eða tengdu hleðslutækið áður
en uppfærslan er ræst.

1. Veldu

Valkostir

>

Leita að uppfærslum

. Ef hægt er að fá uppfærslur skaltu

samþykkja niðurhal.

2. Að niðurhali loknu skaltu velja

Núna

til að setja uppfærsluna upp. Til að hefja

uppsetningu síðar skaltu velja

Síðar

.

Til að hefja uppsetningu síðar skaltu velja

Valkostir

>

Setja upp uppfærslu

.

Ef ekkert miðlarasnið hefur verið tilgreint biður tækið þig um að búa það til,
eða velja af lista yfir miðlara ef um fleiri en einn er að ræða. Hafðu samband
við þjónustuveituna til að fá stillingarnar.