 
Stillingar Bluetooth-tengingar
Veldu >
Stillingar
>
Tenging
>
Bluetooth
.
Bluetooth
— Til að kveikja og slökkva á Bluetooth-tengingu.
Sýnileiki síma míns
>
Sýnilegur öllum
— Til að leyfa að önnur Bluetooth-tæki geti
ávallt fundið tækið þitt. Til að leyfa að hægt sé að finna tækið þitt á tilgreindu 
tímabili skaltu velja 
Tilgreina tímabil
. Til öryggis er þér ráðlagt að nota stillinguna
Falinn
þegar það er mögulegt.
Nafn síma míns
— Til að gefa tækinu heiti.
Ytra SIM
>
Kveikt
— Til að gera öðru tæki, t.d. bílbúnaði, kleift að nota SIM-kort
tækisins með Bluetooth-tækni (SIM access profile).
Þegar ytri SIM-stilling er virk í þráðlausa tækinu er aðeins hægt að hringja og svara 
símtölum með samhæfum aukahlut sem er tengdur við það (t.d. bílbúnaði). Ekki er 
hægt að hringja úr þráðlausa tækinu þegar stillingin er virk, nema í neyðarnúmerið 
sem er forritað í tækið. Eigi að hringja úr tækinu þarf fyrst að slökkva á ytri SIM-stillingu. 
Ef tækinu hefur verið læst skal fyrst slá inn lykilnúmerið til að opna það.