 
Snið án tengingar
Ótengda sniðið er ræst á fljótlegan hátt með því að styðja stuttlega á rofann og 
velja 
Ótengdur
. Til að fara úr ótengda sniðinu skaltu styðja stuttlega á rofann
og velja annað snið.
 
14
T æ k i ð
Þegar ótengda sniðið er virkt er slökkt á öllum tengingum við farsímakerfi. 
En hægt er að nota tækið án SIM-korts og hlusta á útvarpið eða á tónlist 
í tónlistarspilaranum. Mundu að slökkva á tækinu þar sem notkun þráðlausra 
síma er bönnuð.
Mikilvægt: Í ótengdu sniði er ekki hægt að hringja, svara símtölum eða nota aðra 
valkosti þar sem þörf er á tengingu við farsímakerfi. Áfram kann að vera hægt að 
hringja í það neyðarnúmer sem er forritað í tækið. Eigi að hringja verður fyrst að 
virkja símaaðgerðina með því að skipta um snið. Ef tækinu hefur verið læst skal 
slá inn lykilnúmerið.