Nokia 6220 classic - A-GPS (Assisted GPS)

background image

A-GPS (Assisted GPS)

Assisted GPS (A-GPS) er notað til að fá hjálpargögn með pakkagagnatengingu og hjálpar við
að reikna út hnit staðsetningar þinnar þegar tækið tekur við merkjum frá gervitunglum.

Símafyrirtækið kann að krefjast greiðslu fyrir þessa tengingu í samræmi við
áskrift þína. Hafðu samband við þjónustuveituna til að fá upplýsingar um
réttan internetaðgangsstað og kostnað þar að lútandi.

Tækið er forstillt þannig að það noti Nokia A-GPS þjónustuna, ef engar sérstakar
A-GPS stillingar frá þjónustuveitunni eru í boði. Hjálpargögnin eru aðeins sótt
frá Nokia A-GPS þjónustumiðlaranum þegar þörf krefur. Til að gera ýmsar
staðsetningaraðferðir óvirkar, sjá „Staðsetningarstillingar“ á bls. 25.

Það verður að vera pakkagagna-internetaðgangsstaður í tækinu til að hægt
sé að nota A-GPS. Sjá „Staðsetningarstillingar“ á bls. 25.