Nokia 6220 classic - Kortum hlaðið niður

background image

Kortum hlaðið niður

Þegar kort er skoðað á skjánum í Kortaforritinu er nýju korti hlaðið sjálfkrafa
niður ef farið er inn á svæði sem ekki er á kortunum sem búið er að hlaða niður.
Gagnateljarinn (kB) á skjánum sýnir hve netnotkunin er mikil þegar kort eru
skoðuð, leiðaráætlanir gerðar eða leitað er að stöðum á netinu.

Niðurhal á kortum getur falið í sér stórar gagnasendingar um farsímakerfi
þjónustuveitunnar. Upplýsingar um gagnaflutningsgjöld fást hjá þjónustuveitum.

Til að koma í veg fyrir að efni, t.d. kortum, sé hlaðið niður þegar þú ert utan
heimakerfisins skaltu velja

Valkostir

>

Verkfæri

>

Stillingar

>

Internet

>

Nettenging við ræsingu

>

Nei

.

Til að tilgreina hvaða minni skal nota og hve mikið pláss á minninu skal nota
til að vista kort eða skrár með raddleiðsögn skaltu velja

Valkostir

>

Verkfæri

>

Stillingar

>

Kort

>

Minni í notkun

og

Nota hámarksminni

. Þegar minnið er orðið

fullt er elstu gögnunum eytt. Hægt er að eyða kortum með Nokia Map Loader PC
forritinu.