 
Um Kort
Með Kortaforritinu geturðu séð hvar á kortinu þú ert staddur, skoðað kort 
yfir ýmsar borgir og lönd, leitað að heimilisföngum og ýmsum áhugaverðum 
stöðum og gert leiðaráætlanir milli staða, vistað staði sem leiðarmerki og 
sent þá í samhæf tæki. Einnig geturðu keypt viðbótarþjónustu, svo sem 
ferðahandbækur, umferðarupplýsingar og nákvæma leiðsagnarþjónustu 
með raddstýringu. Slík þjónusta er ekki í boði í hvaða landi sem er.
Sum kort kunna að hafa verið á minniskorti tækisins þegar þú fékkst það. 
Hægt er að hlaða niður fleiri kortum af netinu með Nokia Map Loader 
forritinu. Sjá „Kortum hlaðið niður“ á bls. 29.
Kort nota GPS. Sjá „Staðsetning“ á bls. 25. Hægt er að velja staðsetningaraðferðir 
fyrir tækið. Sjá „Staðsetningarstillingar“ á bls. 25. Til að fá sem nákvæmastar 
upplýsingar um staðsetningu skaltu nota annaðhvort innbyggða 
GPS-móttakarann eða samhæfan ytri GPS-móttakara.