Leiðsögn til áfangastaðar
Ábending: Til að prófa leiðsagnarleyfi í tiltekinn tíma án endurgjalds skaltu
velja
Kort
>
Valkostir
>
Aka til
eða
Ganga þangað
. Forritið kannar hvort
slíkt leyfi sé í boði fyrir tækið. Til að leyfið verði virkt skaltu velja
Í lagi
.
Aðeins er hægt að nota sér leyfið einu sinni.
Til að kaupa leyfi fyrir gangandi eða akandi vegarendur með raddstýringu skaltu
velja
Valkostir
>
Aukakostir
>
Aka og ganga
. Til að kaupa aðeins leyfi fyrir
fótgangandi vegfarendur skaltu velja
Ganga
. Hægt er að greiða fyrir þjónustuna
með kreditkorti eða skuldfæra hana símareikning, ef þjónustuveitan styður slíkt.
Til að hefja leiðsögn skaltu velja stað, styðja á skruntakkann og velja
Aka til
eða
Ganga þangað
.
Þegar leiðsögn fyrir akandi vegfarendur er notuð í fyrsta skipti er beðið um að
þú veljir tungumál raddstýringarinnar og hlaðir niður raddstýringarskránum.
Til að skipta síðar um tungumál skaltu velja
Valkostir
>
Verkfæri
>
Stillingar
>
Leiðsögn
>
Raddleiðsögn
á aðalvalmynd Kortaforritsins. Raddleiðsögn fyrir
gangandi vegfarendur er ekki í boði.
Til að skipta milli kortaskjámynda meðan leiðsögn fer fram skaltu styðja
á skruntakkann og velja
Leiðarskjár
,
Yfirlitsskjár
eða
Örvaskjár
.
Til að hafna leiðinni sem búin var til og nota aðra leið skaltu velja
Valkostir
>
Önnur leið
.
Til að stöðva leiðsögnina skaltu velja
Valkostir
>
Stöðva
.