 
■ Um GPS
Í tækinu er innbyggður GPS-móttakari.
GPS-kerfið (Global Positioning System) er rekið af Bandaríkjastjórn sem ber alla ábyrgð 
á nákvæmni þess og viðhaldi. Nákvæmni staðsetningargagna kann að verða fyrir áhrifum 
af breytingum á GPS-gervihnöttum sem gerðar eru af Bandaríkjastjórn og kann að 
breytast í samræmi við stefnu varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna um borgaralegt 
GPS og alríkisáætlun um þráðlausa leiðsögu. Slæm rúmfræði gervihnatta getur einnig 
haft áhrif á nákvæmni. Staðsetning, byggingar, náttúrulegar hindranir auk veðurskilyrða 
kunna að hafa áhrif á móttöku og gæði GPS-merkja. Aðeins ætti að nota GPS-móttakarann 
utanhúss til að taka á móti GPS-merkjum.
Ekki ætti að nota GPS fyrir nákvæmar staðsetningarmælingar og aldrei ætti að treysta 
eingöngu á staðsetningargögn frá GPS-móttakaranum og símkerfi fyrir staðsetningu 
eða leiðsögn.