Nokia 6220 classic - Hugbúnaðaruppfærslur

background image

Hugbúnaðaruppfærslur

Nokia kann að framleiða hugbúnaðaruppfærslur með nýjum möguleikum, bættum
aðgerðum eða aukinni virkni. Þú getur hugsanlega nálgast þessar uppfærslur með
forritinu Nokia Software Updater PC. Til að uppfæra hugbúnað tækisins þarf Nokia
Software Updater forrit og samhæfa tölvu með Microsoft Windows 2000, XP eða Vista
stýrikerfi, breiðbands-internetaðgang og samhæfa gagnasnúru til að tengja tækið
við tölvuna.

Hægt er að hlaða niður Nokia Software Updater forritinu, og fá upplýsingar um það,
á www.nokia.com/softwareupdate eða vefsíðu Nokia í þínu landi.

Ef símkerfið styður hugbúnaðaruppfærslur með ljósvakaboðum kannt þú einnig að geta
beðið um uppfærslur úr tækinu. Sjá „Hugbúnaður uppfærður“ á bls. 67.

Það að hlaða niður hugbúnaði getur falið í sér stórar gagnasendingar um farsímakerfi
þjónustuveitu. Upplýsingar um gagnaflutningsgjöld fást hjá þjónustuveitum.

Gættu að því að rafhlaða tækisins hafi næga hleðslu eða tengdu hleðslutækið áður
en uppfærslan er ræst.

background image

9

F y r s t u s k r e f i n